

Nokkru fyrir hádegi lagði ég af stað að heiman, stefnan var sett á Vífilsfell, en ég hafði ekki gengið á Vífisfell síðan 6. janúar, en þá lauk ég 100 tinda takmarkinu. Í dag var ég ekki í stuði, var tæplega klukkustund á toppinn og var allt að því þreyttur. En Vífilsfellið klikkar ekki, útsýnið er fínt og þrátt fyrir þreytu eða óstuð verður að segjast sem er, Vífilsfell er gott og þægilegt fjall.
Það er reyndar skelfilegt að sjá malarnámið viæ rætur Vífilsfells. Mér virðist sem það sé alltaf að verða grófara og grófara. Eins er ástæða til að nefna að óhljóð frá mótorhjólum og fjórhólum heyrast vel upp í hlíðar Vífilsfells. Þreytandi, sérstaklega í góðu veðri.
Til gamans birti ég mynd sem ég tók af mér í morgun og aðra sem ég tók þegar ég náði 100 tinda markinu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli