sunnudagur, 15. júní 2008

Dyradalur, Marardalur, Sleggjubeinsdalur





gengum í gær, 14. júní, úr Dyradal, yfir í Marardal og enduðum í Sleggjubeinsdal. Til að gera þetta fórum við á báðum bílunum í Sleggjubensdal, skildum jeppann eftir og ókum á frúarbílnum í Dyradal. Og gengum, og gengum. Þetta var fínt. Gott veður og skap. Þegar við komum í Marardal hittum við þar hestafólk, en þegar við kojum út úr Dalnum að austan gengum við fam á ummerki um náttúruníðinga. Fleiri merki um grófan akstur tveggja og fjögurra hjóla nátturueyðingartækja urðu á vegi okkar.
Eftir að hafa borðað hádegsimat var hladið af stað á ný. Þá tókum við að mæta mönnum og mótorhjólum. Sumir þeirra hægðu ekki einu sinni ferðina þegar þeir mættu okkur. Ökuníðingar. Komum í Sleggjubeinsdal fjórum tímuj eftir að við lögum af stað. 13,1 km.

Hábunga Esjunnar



Fór með Útivist. Farið var upp Gunnlaugsskarð og á Hábungu Esjunnar. Þaðna var gengið yfir í Kjósina. Þetta var fín ganga, fínasta veður framanaf, en rigndi talsvert seinni hlutann. Samtals gengum við 16,5 kílómetra, 800 mtra hækkun og við vorum 7,5 klukkustundir að þessu.
Hafði gaman af þessu og ætla í fleiri strangar dagsferðir.

Aftur á Helgafell í Mosó


Fórum kvöldgönu á Helgafell í Mosó. Gengum hringinn. Tekur á annan tíma. Mættum rjúpu og fleiri góðum.

Úlfarsfell




Gengum ásamt Hildi Þorsteins á Úlfarsfell. Fínasta ganga og enn og aftur sannar Úlfarsfellið hversu hentugt það er. Tekur aðeins á, í góðu veðri er útsýnið drjúgt.

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.