laugardagur, 31. maí 2008

Feðgar á felli


Við Janus gengum á Helgafell í hádeginu miðikudaginn 28. maí. Fín amvera, gengið, talað og hlegið. Þannig á þetta að vera. Sviti er fínn. Við líka.

Hildur og Jórunn með á Helgaell



Þriðjudaginn 27. maí kom að því að Hildur og Jórunn komu með í göngu. Fyrir valinu varð Helgafell þeirra Hafnfirðinga. Gangan sóttist vel og var almennt gerður góður rómur af fellinu, félögunum og andanum.

þriðjudagur, 27. maí 2008

Sunnudagur á Grænudyngju


Halda skaltu hvíldardaginn heilagan. Það gerðum við á Grænudyngju. Vindur, vindur vinur minn. Hann vantaði ekki. En fjandi var nú gaman samt. Ætluðum jafnvel líka á Trölladyngju, en þau áform fuku, já fuku út í buskann.

Á Vífilsfelli


Þegar Mannlíf kom úr prentun skundaði ég á Vífilsfell. Fín ganga og veðrið með ágætum. Dásamlegt sport, er kominn í stuð.

Aftur á Helgafelli


Eftir að hafa farið á Helgafell í Mosó var ákveðið að gera það aftur. Í fyrri ferðinni gengum við hringinn, góður klukkutími, en núna gengum við hring upp á fellinu, styttri gönguferð. En góð.

Hjónin á Helgafelli

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.