Eftir að hafa farið á Trölladyngju fór ég nokkrar ferðir á fáu dögum. Stundum var kalt en ég lét það ekki stoppa mig. Vissulega hafði það áhrif á hvert ég fór, en ég fór.
8. apríl fór ég aftur á Trölladyngju, daginn eftir á Húsfell, 11. apríl á Stórhöfða í Hafnarfjarðarhrauni, 13. apríl fór ég bæði á Valahnjúka og Húsfell og á Hrútfell daginn eftir.
Þarna höfðu safnast sjö tindar á fáum dögum.
Ég hafði þegar þarna var komið sett mér markmið. 100 tinda á einu ári. Við það stóð ég. Það sem mestu skipti var að ég setti mér það markmið að fara þó veður væri ekki gott, ég fór oft þó svo veður og aðstæður væru ekki með því besta. Það sést betur á eftir.
Myndin er tekin þegar ég fór á Hrútfell, sem er lágt fell nærri Djúpavatni á Reykjanesi. Hér var það ekki hæðin sem var aðalmálið. Heldur að fara þó það væri bæði kalt og hvasst.