föstudagur, 21. mars 2008

Esja á föstudaginn langa

Við gerðum margt á föstudaginn langa. Við gegnum á Esjuna, komum heim og týndum vetrardraslið úr garðinum, þvoðum gluggana og bílana. Og, við létum renna í heitapottinn í fyrsta sinn. Og auðvitað fórum við í pottinn. Ég sofnaði, skamma stund.
Þetta var frábær dagur, sólskin og þokkalegur hiti, fimm til sex stig. En nú spáir snjókomu og grimmdarfrosti. Ósanngjarnt.
Hér eru þrjár myndir úr Esjuferð dagsins. Ekki fer á milli mála að hér er vetur enn. Snjór og svell.

Kirkjufellið til tilraunar

Er að reyna að tengja saman bloggsíðuna og myndaalbúm. Sjáum hvernig til tekst.

sunnudagur, 16. mars 2008

Þar sem tábrot, eða brákuð tá, veit ekki hvort er, er ekki heppilegt til fjallgöngu ákvað ég að nota góða veðrið, réttara sagt, bjarta veðrið, til að hjólaferðar.
Hélt að heiman og hjólaði með ströndinni að Elliðaárdal - og heim aftur. Samtals 24 kílómetrar, sagt og skrifað, 24.
Í gær tók ég mynda af Esjunni, í dag tók ég mynd að Esjunni. Merkilegt.
Svo er ein mynd af mér. Athyglissýkin þarf næringu.

Hjólandi

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.