

Jæja loks fór ég á fjall, það var Esjan í frábæru veðri, einsog sjá má af myndunum. Þetta var létt ganga, en stundum hál, rann tvisvar á rassinn, ekki alvarlet. Verð að fá mér brodda, jafnvel líka stafi. En umfram allt, þetta var fínt.
Eina sem hrjáði mig var að ég hef tognað í hægra læri og litla á hægra fæti er sennilega brotin, allavega brákuð.
Önnur myndin er af mér, það er venja í athyglissýkinni að smella að lágmarki einn af mér. Hin myndin sýnir hvar mér finnst að nýr vegur eigi að liggja í stað Sundabrautar, frá Blikastöðu, yfir á Álsnes, yfir Kollafjörð og þaðan á Kjalarnes. Kostar brot af Sundabrautarþvælunni.