laugardagur, 18. ágúst 2007

Vífilsfell 18.8.07



Nokkru fyrir hádegi lagði ég af stað að heiman, stefnan var sett á Vífilsfell, en ég hafði ekki gengið á Vífisfell síðan 6. janúar, en þá lauk ég 100 tinda takmarkinu. Í dag var ég ekki í stuði, var tæplega klukkustund á toppinn og var allt að því þreyttur. En Vífilsfellið klikkar ekki, útsýnið er fínt og þrátt fyrir þreytu eða óstuð verður að segjast sem er, Vífilsfell er gott og þægilegt fjall.
Það er reyndar skelfilegt að sjá malarnámið viæ rætur Vífilsfells. Mér virðist sem það sé alltaf að verða grófara og grófara. Eins er ástæða til að nefna að óhljóð frá mótorhjólum og fjórhólum heyrast vel upp í hlíðar Vífilsfells. Þreytandi, sérstaklega í góðu veðri.
Til gamans birti ég mynd sem ég tók af mér í morgun og aðra sem ég tók þegar ég náði 100 tinda markinu.

Kirkjufell í lok júlí



Við erum svo lánsöm að hafa í tvígang tekið þátt í Góðum dögum í Grundarfirði. Í ár fór ég ásamt fjórum fínum félögum á Kirkjufell; en þeir Ingi Þór Guðmundsson og bræðurnir Jóhann, Björgvin og Skúli Bjarnasynir.
Í upphafi gengum við kannski of geyst, en þegar komið var ofar í fellið reyndist uppgangan léttari en ég hafði gert mér í hugarlund. Það er glæsilegt að vera á toppi Kirjufells. Útsýnið mikið og svo hitt að hafa farið á topp Kirkjufells er ekki verra, sérstök líðan.
Hluta leiðarinnar verður göngufólk að vinda sig upp á köðlum, það er spennandi og reynir öðru vísi en almennt er.
Skora á alla að reyna Kirjufellið, en lofthræddir eiga held ég ekki að reyna.

mánudagur, 13. ágúst 2007

Gullbringa


Æðið var algjört. 17. apríl sat ég ekki aðgerðarlaus. Nú var það Gullbringa, sjálf Gullbringa. Létt ganga en fallegt útsýni. Ég er alltaf jafn sjálfhverfur. Myndin af mér er svo sem ágæt, en það er Kleifarvatn sem er í baksýn.

Kristborg með á Hrútfell


16. apríl 2006 var ekki hlýr, hann var ískaldur þessi dagur. Ég var svo uppnuminn af Keilisgöngu gærdagsins að ég linnti ekki látum fyrr en Kristborg féllst á að koma með mér á Hrútfell, sem er lágt fell ekki langt frá Djúpavatni nærri Vigdísarvöllum á Reykjanesi. Einsog sjá má á myndinni blés á okkur köldum vindum. Samt hressandi og bæði í fínasta skapi.

Kristborg með á Hrútfell


16. apríl 2006 var ekki hlýr, hann var ískaldur þessi dagur. Ég var svo uppnuminn af Keilisgöngu gærdagsins að ég linnti ekki látum fyrr en Kristborg féllst á að koma með mér á Hrútfell, sem er lágt fell ekki langt frá Djúpavatni nærri Vigdísarvöllum á Reykjanesi. Einsog sjá má á myndinni blés á okkur köldum vindum. Samt hressandi og bæði í fínasta skapi.

Keilir


15. apríl fór ég á Keili í fyrsta sinn. Frábært. En ekki strax. Það hafði snjóað um nóttina og var fyrstur um moruninn. Sá enga slóða og fór kolranga leið að Keili. Fór líka upp á röngum stað, fór upp suðausturhornið, það er mikið brattara en hin hefðbundan leið. Mér gekk samt ágætlega og þegar ég kom á toppinn hætti að snjóa og sólin skein og gladdi mig mikið. Ótrúlegt útsýni. Fór með margar bænir og fannst Guð vera nærri mér. Þarna fékk endalega æði fyrir fjallgöngum.

Stokkið...


...af stað. Hér stekk ég yfir sjö göngur, en segi samt frá þeim í nokkrum orðum. Síðast sagði ég frá Tröladyngjuferð 26. mars 2006.
Níundi tindurinn var Trölladyngja, en þá var kominn 8. apríl. Það var kalt þessa daga.
Húsfell var tíundi tindurinn og honum náði ég strax næsta dag, 9. apríl. Stórhöfði, sem er höfði nærri Krýsuvíkurvegi var næsti áfangi, hann er ekki merkilegur að sjá, en það var drjúg ganga að honum og það var skítakuldi. Þetta var ellefta apríl.
13. apríl fór ég á Húsfell og þann 14. fór ég á Hrútfell.
Þar með hafði ég náð 15 tindum og apríl aðeins hálfnaður.

Helgafell - besti tími ársins

Í hádeginu í dag, mánudaginn 13. ágúst fór ég á Helgafell í háeginu. Þegar við vorum á Helgarfelli á laugardag sá ég að fólk hafi skrifað að það hafi aðeins verið 30 mínútur á tind fellsins. Ég held að þau sem skrifuðu séu yngri en ég. Jæja, í dag reyndi ég allt sem ég gat til að jafna þetta afrek. Það tókst ekki alveg, og allt, einsog Eiríkur Fjalar segir. Ég var 32 mínútur upp og 27 niður, sem sagt 59 mínútur frá bíl að bíl. Þetta er besti tíminn minn í ár. Í fyrra fór ég hraðast á 57 mínútum. Þá var ég sjö til átta kílóum léttari en núna, svo þetta er barasta fínt hjá mér.

Þverfellshorn



Á sunnudaginn gengum við á Þverfellshorn. Gangan var sérstök fyrir tvennt. Í það fyrsta hittum við frankst par og danska stelpu. Við fimm ræddum málin og sú danska varð að fá liðsinni okkar til að sannfæra Frakkana um að hæsta "fjall" Danmerkur er innan við 200 metra hátt. Þetta voru kátir krakkar og þau lögðu traust sitt á okkur við klappaklifrið efst. Ég varð solið upp með mér.
Hitt merkilega við þessa ferð var að þetta var í fyrsta sinn sem Kristborg fór á Þverfellshorn. Enn og aftur sýndi hún fimi við erfiðustu aðstæður.

Helgafell 11.8.2007


Jæja, smáútúrdúr og koma til nútímans. Um liðna helgi vorum við nokkuð rösk. Á laugardag gengum við á Helgarfell. Ágætis ganga á þetta viðráðanlega fell.

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.