mánudagur, 20. ágúst 2007

Marardalur 19. ágúst 2007



Gekk úr Dyradal í Marardal, alls rúmir 10 kílómetrar. Hækkanir eru drjúgar. Sagan er merkileg en Marardalur er þannig að erfitt er að komast í hann og úr honum. Þess vegna var hann notaður til að hafa þar nautgripi, en í Marardal skorti ekki gras og ekki vatn. Þegar ég var í Marardal sá ég nú hvergi vatn, allt var skraufaþurrt. En ég var í dalnum síðast snemma í vor, þá var nóg vatn í dalnum.
Mæli með þessari göngu, hún er öllum fær og ekki svo erfið.

Engin ummæli:

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.