laugardagur, 10. maí 2008

Frábært á föstudegi

Sjaldan hef ég verið eins glaðu á göngu í rigningarsuddanum sem var á föstudagsmorguninn þegar farið var á Úlfarsfell. Milli 80 og 90 göngumenn voru samankomnir. Valdimar Örnólfsson stýrði morgunleikfimi áður en lagt var af stað. Frábær maður. Gleðin og ánægjan taumlaus. Uppi var boðið upp á morgunmat. En það var sko ekki allt. Páll Ásgeir, foringi okkar, er félagi í Karlakórnum Fóstbræðrum. Margir þeirra voru með honum og sungu fyrir okkur. Hér er að finna upptöku af söng þeirra. Stutt frá sagt, þá voru þeir klappaðir upp. frábært framtak og þeir fylltu brjós okkar hinna af hlýju og gleði. Eftir sönginn gengum við nokkur um á fellinu. Veðrið æstist, en veður er jú einu sinni aðeins viðhorf.

Helgafell á fimmtudegi


Morgungöngum var haldið áram. Á fimmtudegi var haldið á Helgafell í Mosó. Létt ganga en skemmtileg. Fjölmenni sem fyrr. Fæ ekki nóg af því að hrósa framtaki Ferðafélagsins, ætla að gerast félagi.

miðvikudagur, 7. maí 2008

Vífilsfell að morgni



Mætti aftur í morgungöngu Ferðafélagsins undir stjórn Páls Ásgeirs. Þetta er ótrúlega vel heppnað verkefni. Fínn hópur sem er gaman að ganga með og Páll Ásgeir er fínn í hlutverki fyrirliðans. Á morgun verður farið á Helgafell í Mosó. Hlakka til.
Fjandans táin grær ekki. Sárt stundum, einkum þegar ég geng niður bratta.
Það var þungbúið á Vífilsfelli og því var ekkert útsýni. hef séð þetta allt áður, en aldrei nógu oft.

þriðjudagur, 6. maí 2008

Faðir vor



Fór í morgungöngu með Ferðafélaginu. Farið var á Keili pg stóð til að fara um klukkan sex. Vorum aðeins of sein. Fínasta ganga, en tábrotið gefur sig ekki. Ekki nokkur leið. Vont á niðurleið. Hitti marga sem ég þekki. Einn af þeim er með mér á mynd, Ólafur Guðmundsson sölustjóri á Kjöreign.
Ljótt að játa, en ég man ekki nafnið á prestinum, held samt að hún heiti, Guðbjörg Jóhannesóttir, sem fór með bæn og blessun á toppi Keilis. Stórkostlegt. Takk fyrir mig, séra minn. Á hinni myndin hef ég lokið göngunni, þreyttur og sæll.

mánudagur, 5. maí 2008

Úlfarsfell 5. maí



Jamm og jæja. 5. maí fórum við loks á Úlfarsfell. Það var ekki kalt, en fjandans rigning. Og vindasamt uppi. Þrátt fyrir takmarkaða æfingu lét Kristborg ekki hjáleggjast að tala í símann í miðri hlíðinni. Mikið að gera hjá frúnni. Já, svona er þetta. En það er með okkur einsog svo marga aðra sem hyggja á göngur í sumar, æfingatímabilið er hafið. Þó ekki Atlantshafið.

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.