



Fór með Útivist yfir Esjuna. Hækkunin var rúmir 900 metrar og vegalegndin um 18 kílómetrar. Ég hafði lítið sem ekkert gengið síðustu vikurnar. Ferðin var ætluð vönu göngufólki, þriggja skóa ferð.
Farið var á Hátind Esjunnar. Hækkunin er mjög ör og ég verð að játa að ég var kominn að því að kasta upp áður en við náðum að komast upp á Esjuna. Hefði sennilega ekki þolað öllu meira álag. Eftir að upp var komið átti ég ekki í neinum teljandi vanda.
Veðrið var frábært og fínn hópur sem gekk saman þessa ágætu leið. Lítið útsýni var Hátindinum sjálfum meðan við vorum þar, en eftir að við vorum farin birti til og á einni myndanna sést Hátindur án skýja.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli