



gengum í gær, 14. júní, úr Dyradal, yfir í Marardal og enduðum í Sleggjubeinsdal. Til að gera þetta fórum við á báðum bílunum í Sleggjubensdal, skildum jeppann eftir og ókum á frúarbílnum í Dyradal. Og gengum, og gengum. Þetta var fínt. Gott veður og skap. Þegar við komum í Marardal hittum við þar hestafólk, en þegar við kojum út úr Dalnum að austan gengum við fam á ummerki um náttúruníðinga. Fleiri merki um grófan akstur tveggja og fjögurra hjóla nátturueyðingartækja urðu á vegi okkar.
Eftir að hafa borðað hádegsimat var hladið af stað á ný. Þá tókum við að mæta mönnum og mótorhjólum. Sumir þeirra hægðu ekki einu sinni ferðina þegar þeir mættu okkur. Ökuníðingar. Komum í Sleggjubeinsdal fjórum tímuj eftir að við lögum af stað. 13,1 km.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli