laugardagur, 10. maí 2008

Frábært á föstudegi

Sjaldan hef ég verið eins glaðu á göngu í rigningarsuddanum sem var á föstudagsmorguninn þegar farið var á Úlfarsfell. Milli 80 og 90 göngumenn voru samankomnir. Valdimar Örnólfsson stýrði morgunleikfimi áður en lagt var af stað. Frábær maður. Gleðin og ánægjan taumlaus. Uppi var boðið upp á morgunmat. En það var sko ekki allt. Páll Ásgeir, foringi okkar, er félagi í Karlakórnum Fóstbræðrum. Margir þeirra voru með honum og sungu fyrir okkur. Hér er að finna upptöku af söng þeirra. Stutt frá sagt, þá voru þeir klappaðir upp. frábært framtak og þeir fylltu brjós okkar hinna af hlýju og gleði. Eftir sönginn gengum við nokkur um á fellinu. Veðrið æstist, en veður er jú einu sinni aðeins viðhorf.

Engin ummæli:

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.