


Við gerðum margt á föstudaginn langa. Við gegnum á Esjuna, komum heim og týndum vetrardraslið úr garðinum, þvoðum gluggana og bílana. Og, við létum renna í heitapottinn í fyrsta sinn. Og auðvitað fórum við í pottinn. Ég sofnaði, skamma stund.
Þetta var frábær dagur, sólskin og þokkalegur hiti, fimm til sex stig. En nú spáir snjókomu og grimmdarfrosti. Ósanngjarnt.
Hér eru þrjár myndir úr Esjuferð dagsins. Ekki fer á milli mála að hér er vetur enn. Snjór og svell.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli