þriðjudagur, 11. mars 2008

Haltur heima

Ekki fór það svo að ég gengi fyrsta áfanga í Steingrímsstígsgöngu Útivistar. Eftir mikil átök í ræktinni er ég draghaltur. Álagsmeiðsli, ekkert annað. Það gerist æ oftar að líkaminn getur ekki fylgt huganum. Þannig er það núna, en horfir til betri vegar. Sem betur fer.
Spáin fyrir helgina er með hreinum ágætum. Nú verður gengið. Annar áfangi á Steingrímsstíg verður farinn á sunnudag. Spennandi og á laugardaginn væri spennandi að fara Esju, Vífilsfell eða jafnvel Keili.

Engin ummæli:

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.