sunnudagur, 1. júní 2008

Benjamín á fjalli



Benjamín gekk með okkur á Úlfarsfell. Var duglegur og áhugasamur. Á fyrri myndinni er hann samferða ömmu sinni í einni af brekkunum og á hinni síðari liggjum við saman í skjóli á tindinum.
Vindur var hvass, en það jók okkur þrek frekar en hitt. Mikið talað um fótbolta, fótboltamenn og fótboltafélög. Hvers vegna spila svona margir Brasilíumenn á Ítalíu? Af því þeir eru svo góðr, var svarið. Svona gekk þetta, upp og niður og við kláruðum með sóma.

Engin ummæli:

100 tindar

100 tindar
Eftir að hafa farið á 100 tinda.